Tugþúsundir ferðamanna heimsóttu Garðskagavita og Reykjanesvita í ágúst

Um 65 þúsund manns heimsóttu Garðskagavita og Reykjanesvita í ágúst síðastliðnum samkvæmt talningum Gyðu Þórhallsdóttur, doktorsnema við Háskóla Íslands, fyrir Stjórnstöð ferðamála.

„Áhugi ferðamanna, bæði innlendra sem erlendra, á Reykjanesinu hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og þessar tölur endurspegla þann áhuga,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri hjá Reykjanes Unesco Global Geopark.

Samkvæmt talningu Gyðu heimsóttu 22 þúsund manns Reykjanesvita og 43 þúsund manns Garðskagavita í ágúst. Það gerir um 710 að meðaltali á dag í Reykjanesvita og 1.390 að meðaltali á dag í Garðskagavita. Talning ferðamanna á þessum stöðum hófst í ár en hún fer fram á 70 stöðum um land allt.

Reykjanesskaginn er í dag svokallaður Geopark eða jarðvangur og er hluti af verndaráætlun UNESCO eða UNESCO Global Geopark. Reykjanes fékk formlega vottun sem Geopark á þrettándu haustráðstefnu European Geoparks Network í Rokua Geopark í Finnlandi í september 2015. Reykjanes Geopark er annað svæðið á Íslandi til að hljóta þessa vottun en Katla Geopark hlaut hana árið 2011. Reykjanes Geopark er jafnframt 66. svæðið í Evrópu sem hlýtur þessa vottun.

Það var mikil lyftistöng fyrir svæðið að hljóta þessa viðurkenningu UNESCO," segir Eggert Sólberg. „Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreifanlegum hætti og á Reykjanesi. Á Reykjanesi er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar má meðal annars finna ýmsar tegundir eldstöðva.“

Töluverðar framkvæmdir eru framundan á Reykjanesi til að mæta auknum fjölda ferðamanna, meðal hefur verið unnið að bílastæði við Reykjanesvita og Brimketil auk palla við síðarnefnda staðinn og lagfæring vegstæðis að Gunnuhver. Þá verða kynntar hugmyndir um þjónustuhús við Reykjanesvita á næstu vikum. Sú framkvæmd og reksturinn þar verður í höndum einkaaðila.

 Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, frá HS Orku og Bláa Lóninu. Auk þess leggur framkvæmdasjóður Reykjanes Geopark til mótframlag en í hann greiða allir aðilar að jarðvanginum.


Fylgstu með okkur á Facebook

Góðar sögur er líka að finna á Facebook síðu verkefnisins.

Á hverjum degi er eitthvað nýtt og spennandi að frétta á Facebook síðu verkefnis. Kíktu endilega við!