Þéttbýli og þorp

Útsýni á Reykjanesi er mikið og fagurt. Þar er sjóndeildarhringurinn víður og við blasa tignarleg fjöll svo sem Snæfellsjökull, Akrafjall, Skarðsheiði og Esja. Nær má nefna Trölladyngju og Keili.

Víða er að finna áhugaverða staði á Reykjanesi. Þar eru mikil fuglabjörg og stutt er í ákjósanlega staði fyrir fuglaskoðun svo sem á Hafnabergi. Brimfjörur eru stórbrotnar, t.d. við Reykjanesvita. Jarðhiti er mikill á svæðinu. Þar má nefna hverasvæðið nálægt Reykjanesvita, en þekktast er þó Svartsengi þar sem Bláa lónið er. Árið 1878 var fyrsti viti á Íslandi byggður á Valahnúki skammt norðan við Reykjanestá. Átta sjómílur suður af Reykjanesi er Eldey, lítil móbergseyja og þar er þriðja mesta súlubyggð í heiminum.

Garður
250
1550
Reykjanes
www.sv-gardur.is/
Garðurinn er frábær staður til að njóta útivistar hvort sem um er að ræða gönguferðir, berjatýnslu í móunum, golf, sund eða nestisferð í ...
Grindavík
240
2850
Reykjanes
www.grindavik.is
Kaupsstaður á sunnanverðum Reykjanesskaga.  Grindavík hlaut kaupstaðarréttindi árið 1974.  Í Landnámabók segir að Molda-Gnúpur Hrólfsson og ...
Reykjanesbær
230,231,233,235,260,261
14100
Reykjanes
Reykjanesbær leggur áherslu á að skapa sterka segla í ferðaþjónustu. Meðal þeirra eru Víkingaskipið Íslendingur og sýning Smithsonian Vikings - The ...
Sandgerði
245
1754
Reykjanes
www.sandgerdi.is
Sandgerðisbær (áður Miðneshreppur) er sveitarfélag á utanverðum Reykjanesskaga. Nær hann yfir alla vesturströnd Miðness (Rosmhvalaness), allt út að ...
Vogar
190
1189
Reykjanes
www.vogar.is
Í Sveitarfélaginu Vogum má finna ýmsa þjónustu fyrir ferðamenn, svo sem sundlaug, golfvöll, veitingastaði og gistingu. Auk þess eru í sveitarfélaginu ...