Fuglar, selir og hvalir

Í aldaraðir hafa fuglabjörg verið forðabúr Íslendinga. Reykjanesið er paradís fyrir áhugasama fuglaskoðara. Krýsuvíkurberg er hæst um 70 metrar og tilvalið til fuglaskoðunar. Þar verpa margar þúsundir sjófugla og er bjargið sérlega litfagurt.

Brimrúntur

Við byrjum út á Reykjanestá. Á Reykjanesi er mikill jarðhiti. Árið 1878 var fyrsti viti á Íslandi hlaðinn á Valahnúki á Reykjanesi. Árið 1907 var reistur nýr viti á Bæjarfelli og sá gamli aflagður. Við nýja vitann hefst gönguleiðin Reykjavegur.

Tillaga að ferð á Suðurnesin

Hægt er að fara yfir mjög áhugavert svæði á einum degi, en ef skoða á allt sem í boði er, þarf nokkra daga og enn fleiri ef á að ganga um hina undurfögru náttúru sem er rétt innan seilingar.