Söfn
Skagabraut 100
250, Garður
www.sv-gardur.is
422-7220
422-7220

Byggðasafnið á Garðskaga var fyrst opnað almenningi þann 26. nóvember 1995 í gömlum útihúsum á Garðskaga. Á tíu ára afmæli safnsins var tekið í notkun nýtt 700 fermetra safnahús með kaffiteríu á efri hæð. Margt merkilegra muna úr byggðasögu Garðsins er á safninu. Má þar nefna yfir 100 ára trérennibekk, heimasmíðað ferðaorgel sem jafnframt er yfir 100 ára, sexæring með Engeyjarlagi sem byggður var árið 1887 og marga aðra merkilega muni.

Það sem gerir safnið á Garðskaga einstakt er vélasafn Guðna Ingimundarsonar. Yfir 60 vélar af ýmsum gerðum, sem nær allar eru gangfærar. Sú elsta er Sandia glóðarhausvél frá árinu 1920.

Safnið hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskaparháttum til sjós og lands, elstu munirnir eru orðnir yfir eitt hundrað ára gamlir. Stór hluti af safninu eru sjóminjar, það er ýmsir hlutir sem notaðir voru við fiskveiðar og til verkunnar á fiski í landi. Á safninu er áttæringur með Sunnlensku lagi smíðaður árið 1913, hefðbundinn trillubátur frá árinu 1932 með upphaflegu vélinni, níu metra langur bátur með Engeyjarlagi smíðaður árið 1887, þá eru fjórir aðrir bátar á safninu.

Einstakt vélasafn er til sýnis vélarnar eru sextíu talsins, þær eru allar uppgerðar af Guðna Ingimundarsyni í Garði, og eru flest allar gangfærar. Vélarnar eru af ýmsum gerðum, mest litlar bátavélar sú elsta frá árinu 1920 ein gufuvél er á safninu.


Sumaropnun: 1. apríl til 31. október. Alla daga kl. 13-17.

Vetraropnun:Opnað fyrir hópa samkvæmt samkomulagi við safnstjóra í síma 894 2135 eða með tölvupósti: gardskagi@simnet.is

OpnunartímiVirkir dagar:Laugardagar:Sunnudagar:
1. apríl - 31. október:13:00-17:00
13:00-17:0013:00-17:00
Opið á öðrum tímum eftir samkomulagi.