Söfn, Sýningar
Duusgata 2
230, Reykjanesbær
421-3796

Listasafn Reykjanesbæjar varð til við sameiningu sveitarfélaganna þriggja Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994 en áður hafði verið til Listasafn Keflavíkur.

Safneignin er nú orðin 497 verk eftir hina ýmsu listamenn og eru þessi verk til sýnis í hinum ýmsu stofnunum bæjarins.


Listasafnið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir sýningum víðs vegar um bæinn en síðast var haldin sýning á völdum verkum úr listaverkaeigninni sumarið 2000. Það var ekki fyrr en haustið 2002 sem safnið fékk góðan sýningarsal í Duushúsum til afnota og hefur það breytt miklu um sýningarhald.  Þar eru nú haldnar sýningar allt árið um kring, bæði á verkum í eigu safnsins og annarra

Listasafn Reykjanesbæjar er í Duushúsum, Menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar.  safnið er opið alla daga frá kl. 11 - 17.  

Í safninu er að finna sýninguna Bátafloti Gríms Karlssonar og sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar,  Völlurinn, sýning um störfin á Vellinum og áhrifin á mannlífið. Elsti bíósalur landsins var opnaður á Ljósanótt 2006. Í Listasalnum er boðið upp á myndlistarsýningar.

Aðgangseyrir er enginn fyrir alla almenna gesti á opnunartíma safnsins. Hópar geta pantað leiðsögn utan opnunartíma og greiðast þá kr. 20.000 fyrir hópinn.

Nánari upplýsingar í síma 421 3796.

OpnunartímiVirkir dagar:Laugardagar:Sunnudagar:
12:00-17:00
13:00-17:00
13:00-17:00
Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar: Vetrarvertíð á Suðurnesjum opnuð 2. júní 2012 og stendur í tvö ár.