Reykjanesvirkjun
0
0,

Hugmyndafræði sýningarinnar gengur út frá stóra hvelli og upphafi sólkerfisins allt aftur til okkar tíma. Farið er meðal annars í gegnum uppfinningar sem breytt hafa lífi okkar til þess vegar sem það er í dag en það ætti að vera okkur öllum ljóst hversu mikilvægur þáttur orkan er í lífi okkar. Fjallað er um mismunandi orkunýtingu á jörðinni og hvaða möguleika við höfum á orkunýtingu bæði hér heima á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Nokkur sýnishorn eru á staðnum en segja má að jarðvarmavirkjunin sjálf sé eitt það stærsta. Sýningin er að nokkrum hluta gagnvirk og geta gestir því tekið virkan þátt í henni. Á spjöldum og gagnvirkum skjám er að finna ógrynni upplýsinga um orku, plánetur og himingeiminn. Meðal gagnvirku tækjanna er jarðskjálftahermir þar sem sýningargestir geta upplifað raunverulega jarðskjálfta á mismunandi richterskala.

Opnunartími:
Sumar: Alla daga frá 11:30-15:30
Vetur: Eftir samkomulagi, by request.