Milli Hraunsvíkur og Járngerðarstaðavíkur við Grindavík
0
0,

Svo heitir að vestanverðu nesið milli Hraunsvíkur og Járngerðarstaðavíkur við Grindavík.  Að austanverðu heitir það Þorkötlustaðanes.  Hópsnesið og næsta nágrenni
þess á sér afar merka sögu sem fremur fáir þekkja vel nema staðkunngir heimamenn og áhugafólk sögu svæðisins. Hópsnesið
er þó einkum þekkt fyrir það að þar hafa orðið margir skipsskaðar frá örófi alda, en einnig mörg frækileg björgunarafrek unnin 
þar sem björgunarsveitin Þorbjörn hefur oft komið við sögu. Þar eru m.a. leifar af nokkrum skipum sem þar strönduðu á 20. öld.
Auk þess er að finna á Hópsnesinu mikilvægan hluta af atvinnusögu Grindavíkur, s.s. fjölmörg forn fiskbyrgi og hleðslur sem
eru a.m.k. jafn gamlar byrgjunum á Selatöngum og mun aðgengilegri. Þar er einnig að finna Hópsnesvita sem reistur var 1928.  

eru a.m.k. jafn gamlar byrgjunum á Selatöngum og mun aðgengilegri. Þar er einnig að finna Hópsnesvita sem reistur var 1928.