Hafnir
0
0,

Hafnaberg er tiltölulega lítið fuglabjarg sunnan Hafna rúmlega 4 km langt.  Það er engu að síður skoðunarvert vegna iðandi fuglalífs og stundum sjást selir og hvalir fyrir landi. Talið að um 6.000 sjófuglapör eigi varpstað í bjarginu; rita, langvía, álka, fýll, teista, silfurmávur, stuttnefja, lundi og súla.  Frá veginum milli Hafna og Reykjanesvita er varðaður nýlegur gönguspölur u.þ.b. 40 mín. gangur niður að bjarginu. Fara þarf með gát við bjargbrún þar sem bergið er sprungið við yztu brún.  Rétt sunnan bjargsins er Sandvík, sandfjara með miklum sandhólum sem er vinsæl til útiveru.