8 sjómílur í SV af Reykjanesi
0
0,

Þverhnípt klettaeyja (77 m.y.s) 8 sjómílur suður af Reykjanesi.  Eldey er mynduð úr móbergi og er 0,03 km2.  Hún er innsta skerið í skerjaklasa miklum sem stendur á einni grynningu og nær klasinn 45 sjómílur frá landi.  Kallast hann Fuglasker eða Eldeyjar.  Eitt þessara skerja var Geirfuglasker þar sem síðustu höfuðstöðvar geirfuglsins voru en það sökk að mestu í eldsumbrotum 1830. 

Í Eldey er ein af stærstu súlubyggðum sem þekkist í heiminum og er eyjan jafnan þakin súlu.  Við talningu, sem gerð var 1949 var fjöldi súlna þar talin um 70 þúsund.