- Um Reykjanes
-Þjónustuleit
Þorp og staðir
Útsýni á Reykjanesi er mikið og fagurt. Þar er sjóndeildarhringurinn víður og við blasa tignarleg fjöll svo sem Snæfellsjökull, Akrafjall, Skarðsheiði og Esja. Nær má nefna Trölladyngju og Keili.
Víða er að finna áhugaverða staði á Reykjanesi. Þar eru mikil fuglabjörg og stutt er í ákjósanlega staði fyrir fuglaskoðun svo sem á Hafnabergi. Brimfjörur eru stórbrotnar, t.d. við Reykjanesvita. Jarðhiti er mikill á svæðinu. Þar má nefna hverasvæðið nálægt Reykjanesvita, en þekktast er þó Svartsengi þar sem Bláa lónið er. Árið 1878 var fyrsti viti á Íslandi byggður á Valahnúki skammt norðan við Reykjanestá. Átta sjómílur suður af Reykjanesi er Eldey, lítil móbergseyja og þar er þriðja mesta súlubyggð í heiminum.
| Garður | Grindavík | Reykjanesbær | Sandgerði | |||||||
![]() | ![]() | ![]() | ![]() | |||||||
|
| |||||||||
| Vogar | ||||||||||
![]() | ![]() | ![]() | ![]() | |||||||







