- Um Reykjanes
-Þjónustuleit
Brimrúntur
Við byrjum út á Reykjanestá. Á Reykjanesi er mikill jarðhiti. Árið 1878 var fyrsti viti á Íslandi hlaðinn á Valahnúki á Reykjanesi. Árið 1907 var reistur nýr viti á Bæjarfelli og sá gamli aflagður. Við nýja vitann hefst gönguleiðin Reykjavegur.
Á Valahnjúki er ógnvænlegt en að sama skapi tign-arlegt klettaþverhnípi. Skammt undan landi rís mó-bergsdrangurinn Karl, 51. Oft má sjá hvali á sundi við Karlinn. Um 8 sjómílur undan landi rís Eldey úr sæ (77 m) og er talið að þar sé þriðja mesta súlubyggð í heimi. Það er skemmtilegt að standa á Valahnúki og horfa á hvítfyssandi öldurnar þegar þær skella á hamrabeltinu. Valahnjúkur og umhverfi hans er það sem dregur gesti fyrst og fremst út að vitanum. Það er gaman að ganga á Valahnjúki en vert er að sýna fyllstu aðgát og leiða yngstu börnin. Gangan upp á bjargið er upp í móti en stutt og ætti að vera við flestra hæfi. Á fáum stöðum á Íslandi er hægt að fylgjast með sjávarföllunum og krafti hafs-ins úr eins miklu návígi og við Reykjanesvita. Fugla-lífið á staðnun er fjörugt og tilkomumikið að fylgjast með því um leið og maður andar að sér sjávarloftinu og horfir á öldurótið.
Á þessu svæði er mikið af leir- og gufuhverum. Sá stærsti og áhugaverðasti er hverinn Gunna eða Gunnuhver. Hverinn heitir í höfuðið á Guðrúnu Önundardóttur sem að sögn gekk aftur til að hrella Vilhjálm Jónsson lögréttumann er hún hafði átt í úti-stöðum við í lifanda lifi.
Síðan er tilvalið að enda rúntinn á því að skoða Brú milli heimsálfa. Samkvæmt jarðfræðikenningum þá þrýstast Evrasíu- og Norður - Ameríkuflekarnir hvor frá öðrum á Reykjanesi. Plötuskilin afmarkast af gosreinum, gjám og gígaröðum sem liggja frá Reykjanesi og norðaustur um land. Segja má að Reykjaneshryggurinn (Mið- Atlantshafshryggurinn) gangi á land á Reykjanesi en með honum liggja skil þessara tveggja fleka. Hægt er að ganga á milli flekanna á brú milli heimsálfa en hún er staðsett skammt ofan við Sandvík.
Brimið er einnig tígullegt í Höfnum og gaman að standa við bryggjusporðinn á gömlu bryggjunni og horfa á hafið ólmast og ólga í öllum sínum ofur-krafti. Hafnir voru ein stærsta úrgerðarstöð Suður-nesja um aldir meðan enn var róið á árabátum, stutt á miðin en lendingin gat verið erfið í öldurótinu.
Í Grindavík er oft ólgandi brim, ægifagurt á að líta og gaman að aka meðfram ströndinni og fylgjast með bátunum smjúga erfiða innsiglinguna í Grinda-víkurhöfn
Back

