Fuglar, selir og hvalir
Í aldaraðir hafa fuglabjörg verið forðabúr Íslend-inga. Reykjanesið er paradís fyrir áhugasama fuglaskoðara. Krýsuvíkurberg er hæst um 70 metrar og tilvalið til fuglaskoðunar. Þar verpa um hundruð þúsundir sjófugla og er bjargið sérlega litfagurt.
Á Hafnabergi er ein stærsta sjófuglabyggð landsins. Frá veginum milli Hafna og Reykjanesvita er skammur gönguspölur fram á ystu brún Hafnabergsins. Garðskagi er þekktur fyrir mikið og fjölskrúðugt fuglalíf en vorin og haustin eru góður tími til fuglaskoðunar á Garðskaga. Þá eru margir farfuglar á leið til eða frá norðlægari slóðum. Stærstu spendýr jarðar, hvalirnir, eru algengir í hafinu kringum Ísland. Allt að átján tegundir hvala koma á hafsvæðin við Ísland á ári hverju. Margar hvalategundanna eru aðeins á Íslandsmiðum á sumrin. Á haustin ferðast þeir þúsundir kílómetra til hlýrri hafsvæða þar sem þeir eignast afkvæmi sín og makast. Á sumrin má finna helstu hvalategundir sem lifa í norðurhöfum, m.a. hnúfubak, hrefnu og stærsta dýr jarðarinnar, steypireyðina, sem getur vegið allt að 190 tonnun og orðið 33 metrar að lengd. Gjarnan sjást hvalirnir frá landi á Garðskaga og meðfram ströndinni allt inní Njarðvíkina. Oft sjást þessi dýr við Reykjanestá í átt til Grindavíkur og eins í átt að Höfnum. Sést þá blástur eða stökkvandi höfrungar, jafnvel stökkvandi hnúfubakur á haffletinum innan 2ja mílna frá landi.
Ósabotnar við Hafnir er tilvalinn staður til þess að skoða seli. Í ágúst fara landselir úr hárum og þá liggja þeir oft í hópum á landi.
Back

