- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Bookmark and Share

Alfa námskeið í Keflavíkurkirkju

14. janúar - 27. mars

Alfa námskeið hefst 14. janúar kl. 19:00.

Hvernig get ég verið viss í minni trú?  Er kristindómurinn leiðinlegur, ósannur og okkur óviðkomandi? Hvers vegna og hvernig bið ég? Þetta eru aðeins nokkrar af mörgum mjög áleitnum spurningum sem leitast er við að svara á Alfa . Alfa er lifandi og skemmtilegt 10 vikna námskeið um kristna trú. Námskeiðið hefur notið gríðarlegra vinsælda og náð útbreiðslu um heim allan. Alfa er haldið í flestum kristnum kirkjudeildum í yfir 130 þjóðlöndum. Vilt þú slást í hóp um 5 milljóna manna sem komist hafa í kynni við kristna trú í gegnum námskeiðið?

Að venju skapast hlýtt og kærleiksríkt andrúmsloft á Alfa. Hin afslappaða umgjörð námskeiðsins gefur fólki tækifæri til að spyrja allra þeirra spurninga sem því dettur í hug.  Allar spurningar eiga rétt á sér, engin er of einföld eða of flókin

Sunnudaginn 9. janúar kl. 12:00 verður kynning á Alfanámskeiðum en þau fara fram á fimmtudagskvöldum í vetur. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér kristna trú á opinn og formdómalausan hátt ættu að sækja þessi námskeið. Fyrsta námskeiðið verður fimmtudagskvöldið 14. janúar kl. 19:00. Dagskrá hvers kvölds er fjölbreytt. Hún hefst með borðhaldi, þá er efni kvöldsins kynnt og í framhaldi af því eru umræður. Öllum er frjálst að viðra skoðanir sínar og fólk tekur algerlega þátt á eigin forsendum!

Allar nánari upplýsingar má finna á www.keflavikurkirkja.is  og www.alfa.is einnig má hafa samband við sr. Skúla S. Ólafsson í s. 8466714 eða á keflavikurkirkja@keflavikurkirkja.is

Back

<<<mars 2010>>>
mþmffls
22232425262728
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
Get Adobe Flash player