Afþreying og staðir
Söfn á svæðinu eru m.a. Listasafn Reykjanesbæjar og
Bátasafn Gríms Karlssonar í Duushúsum í Reykjanesbæ, Orkuverið Jörð á
Reykjanesi, Fræðasetrið í Sandgerði, Saltfisksetur Íslands í Grindavík
og Byggðasafnið á Garðsskaga.
Þessu til viðbótar er ýmis afþreying í boði svo sem handverkshús
(gallerí), golf, merktar gönguleiðir, hvalaskoðun og útsýnisflug.
Nokkrar sundlaugar eru á Reykjanesi en Bláa lónið hefur algjöra
sérstöðu meðal baðstaða og tengist þeim jarðhita sem er á svæðinu. Til
jarðfræðinnar má einnig rekja brúna milli austurs og vesturs sem reist
hefur verið yfir gjána milli jarðskorpuflekanna sem Reykjaneshryggurinn
skilur að.
Á Reykjanesi er nú lögð mikil áhersla á heilsufars- og
náttúrutengda ferðaþjónustu. Skrautfjöðrin er eitt af undrum Íslands,
Bláa lónið. Það er orðið einn af vinsælustu viðkomustöðum ferðamanna,
m.a. vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll og Reykjavík og þar eru nær
óþrjótandi möguleikar til uppbyggingar og þjónustu, bæði á að auka
núverandi starfsemi og bæta við nýjum þáttum heilsutengdrar
ferðaþjónustu.
| Áhugaverðir staðir | |
Atburðadagatal | |
Afþreying | Ferðatillögur | |||||
|
|
|
![]() |
|||||||





