Markaðsstofa Suðurnesja


Markaðsstofa Suðurnesja er ábyrg fyrir rekstri upplýsingamiðstöðvar Suðurnesja og Upplýsingamiðstöðvar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og bókunarþjónustu á báðum stöðum. Markaðsstofan sér um útgáfu bæklinga, korta og ýmis konar öðru efni til kynningar á ferðaþjónustunni á Suðurnesjum. Markaðsstofan sér um rekstur heimasíðunnar www.visitreykjanes.is og www.reykjanes.is og annast samskipti við opinbera aðila í ferðaþjónustunni eins og Ferðamálastofu og Íslandsstofu.

Markaðsstofan hefur skrifstofu að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ sem er opin alla virka daga, sími 421 3520 og 893 4096, netfang info@visitreykjanes.is

Starfsmenn eru:

Stjórn Markaðsstofu Suðurnejsa skipa:
  • Reynir Sveinsson, formaður,
  • Óskar Sævarsson, varaformaður,
  • Kristján Pálsson, ritari.