Ferðaupplýsingar


Upplýsingamiðstöð Reykjaness er hlutlaus upplýsingamiðstöð sem býður íbúum og ferðamönnum upp á ókeypis þjónustu, þar liggja frammi allir helstu ferðabæklingar sem gefnir eru út á Íslandi. Á Upplýsingamiðstöð Reykjaness er hægt að bóka gistingu og alla afþreyingu um allt land. Veittar eru upplýsingar um allt er kemur að ferðalögum og heimildaöflun um Reykjanesið. Fyrirtækjum og hópum er boðin ráðgefandi þjónusta um afþreyingarmöguleika í hópferðum. Einnig er aðstoðað við útvegun á leiðsögumönnum ef þarf. Upplýsingamiðstöðin annast dreifingu bæklinga í ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu.


Upplýsingamiðstöð Reykjaness
Krossmóa 4

Sími:421-3520