Ljósanótt í Reykjanesbæ

01.09.2011 - 04.09.2011

7LJOSANOTT.jpg

Ljósanótt.

1. september - 4. september

Menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, Ljósanótt, verður haldin fyrstu helgina í september. Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum með lýsingu Bergsins og glæsilegri flugeldasýningu. Tónlistin leikur stórt hlutverk á Ljósanótt í rokkbænum Reykjanesbæ.  Fjöldi myndlistarmanna sýna verk sín víðsvegar um bæinn auk þess sem gallerý og vinnustofur listamanna verða opnar. Einnig má nefna fjölbreytta barnadagskrá, púttmót, áheitasund, briddsmót, flugmódelsýningu, hnefaleikakynningu, pílukastmót, kraftakeppnina Sterkasti maður Suðurnesja, árgangagöngu, landnámsdýragarð, Reykjanesmaraþon, fjöbreytta íþrótta- og tómstundaviðburði og svo margt fleira.  Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð án áfengis og eru foreldrar hvattir til þess að virða útivistartíma barna og unglinga.
Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á www.ljosanott.is
Valgerður Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri hátíðarinnar, netfang valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.