Á Bóndadag, listasýning í listasal Reykjanesbæjar.

20.01.2012 - 18.03.2012

 
Föstudaginn 20. jan. kl. 18.00 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna „Á Bóndadag“ í Listasafni Reykjanesbæjar.
Sýningin er liður í verkefninu Réttardagur - 50 sýninga röð og mun vera sú 34. í röðinni. Stefnt er að því að setja upp 50 sýningar á tímabilinu júní 2008 til júní 2013 sem allar fjalla á einn eða annan hátt um sauðkindina og þá menningu sem skapast út frá henni. Nú þegar hafa sýningarnar ratað í flesta landshluta auk Hollands, Þýskalands og Bretlands. Verkefnið vinnur Aðalheiður yfirleitt í samstarfi við heimamenn og aðra listamenn á hverjum stað fyrir sig.

Listasafn Reykjanesbæjar hefur í nokkur ár staðið fyrir kynningu á íslenskri myndlist í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Í næstu viku verður hægt að sjá þar skúlptúra eftir Aðalheiði undir heitinu „Ferðalangar“ og telst það 35. sýningin í Réttardagsverkefninu.

Listasafn Reykjanesbæjar er opið alla daga 12.00-17.00 og um helgar 13.00-17.00, aðgangur er ókeypis. Sýningin stendur til 18. mars.