Fréttatilkynning - Gunnuhver - Aðgengi fyrir alla

23.06.2010 - 30.11.2010


Fréttatilkynning - Gunnuhver - Aðgengi fyrir alla
23. júní - 31. ágúst

Háhitasvæðið við Gunnuhver   - Aðgengi fyrir alla -
Háhitasvæðið við Gunnuhver á Reykjanesi hefur verið opnað að nýju eftir þriggja ára lokun. Lokunin stafaði af miklum umbreytingum á svæðinu við gufu- og leirgos sem þar varð og í framhaldi af því lokaði lögreglan svæðinu. Nafnið á hvernum kemur úr þjóðsögum Jóns Árnasonar sem segir frá því hvernig illvíg afturganga á Suðurnesjum að nafni Gunna var lokkuð af séra Eiríki í Vogsósum ofan í hverinn og situr þar enn.

Stærsti leirhver á Íslandi. Svæðið hefur gjörbreyst við Gunnuhver frá því sem var fyrir þrem árum og hefur myndast hér stærsti leirhver á Íslandi með gígop sem er 20 metrar í þvermál. Mikið gufuútstreymi er nú á háhitasvæðinu með fjölda gufu- og leirhvera sem hafa myndast vegna suðu í jarðhitageyminum.  Gufan leitar til yfirborðsins í gufuaugum og hvínandi gufuhverum en þéttist líka í yfirborðsvatni og myndar með því leirhveri.
Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa látið smíða útsýnispall við Gunnuhver þar sem hægt er að sjá og heyra orkuna brjótast úr iðrum jarðar.  Einnig hefur verið lögð göngubrú upp á Kísilhól þar sem gott útsýni er að stærsta lerihver landsins.  Þaðan er einnig gott útsýni yfir Gráa lónið sem hefur myndat á sama hátt og Bláa lónið.  Á háhitasvæðinu við Gunnuhver stundaði danskur maður, Höyer að nafni, og lettnesk kona hans blómarækt og pottagerð á fjórða áratug síðustu aldar en leifar eru af íbúðarhúsi þeirra við Kísilhól.

Framkvæmdirnar við Gunnuhver eru fjármagnaðar með styrk frá Ferðamálastofu, Reykjanesbæ og Grindasvíkurbæ.  Göngustígur um svæðið milli útsýnispallanna var lagður og kostaður af HS orku hf.  Verkfræðistofa Suðurnesja sá um eftirlit með verkinu en Pétur Jónsson, landslagsarkitekt sá um hönnun svæðisins og Grindin hf. í Grindavík sá um smíði pallanna.  Ferðamálasamtök Suðurnesja þakkar öllum þessum aðilum fyrir góða vinnu og stuðning.  Einnig vilja Ferðamálasamtökin þakka lögreglustjóranum og lögreglunni á Suðurnesjum fyrir góða samvinnu við að opna aftur þetta mikilvæga svæði fyrir ferðaþjónustuna á Suðurnesjum. Gunnhver